Nýr valkostur í húsfélagsrekstri

Með það að markmiði að gera húsfélögum kleift að sjá um eigin rekstur á einfaldari, ódýrari og skilvirkari hátt en áður hefur þekkst.

Hvernig Húsró varð til

Eftir fimm ára sjálfboðavinnu sem gjaldkeri og formaður húsfélags var annar stofnandinn orðinn þreyttur á tímafrekri handavinnu og umstangi við reksturinn.

Hefðbundin húsfélagsþjónusta kostaði meira en húsfélagið réði við, og þegar við leituðum að lausnum fannst okkur augljóst að það vantaði milliveg. Sniðugt tól fyrir húsfélög sem vilja sjá um sig sjálf, en með minni fyrirhöfn.

Þannig kviknaði hugmyndin. Húsró er nýr og hagkvæmur valkostur sem einfaldar reksturinn og sparar húsfélaginu bæði tíma og fjármuni.

Teymið

Teymið á bak við Húsró er lítið en reynslumikið. Það samanstendur af reynsluboltum úr hugbúnaðargeiranum en auk þess koma bókari og endurskoðandi að þróuninni.

Eva Dögg Steingrímsdóttir

Stofnandi

Stefán Hafsteinsson

Stofnandi