Persónuverndarstefna
Síðast breytt: 28.03.2026
Húsró ehf., kt. 640326-0850 (hér eftir „Húsró“), ber ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga í starfsemi sinni sé í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og ákvæði GDPR.
Persónuverndarstefna þessi útskýrir hvernig Húsró vinnur persónuupplýsingar þeirra sem nota kerfið.
Hvaða persónuupplýsingum er safnað
Eftirfarandi persónuupplýsingum er safnað:
- Netfangi við skráningu á biðlista.
- Notendaupplýsingum: Kennitala, nafn og netfang við skráningu í gegnum rafræn skilríki.
- Húsfélagsupplýsingum: nafn, kennitala, heimilisfang.
- Upplýsingum úr Fasteignaskrá.
- Upplýsingum um fjármál húsfélagsins sem notandinn skráir sjálfur í kerfið.
- Nöfnum og netföngum eigenda eigna sem falla undir húsfélagið.
- Kvittunum og fylgiskjölum sem hlaðið er upp í kerfið.
- Upplýsingum um tæki, vafra og IP-tölu.
Hvers vegna er þessum persónuupplýsingum safnað?
Húsró aflar persónuupplýsinga til þess að uppfylla samningsskyldu um veitta þjónustu, búa til ársreikninga og fjárhagsyfirlit húsfélaga og senda eigendum boð í kerfið.
Með hverjum er persónuupplýsingum deilt?
Húsró deilir persónuupplýsingum með þjónustuaðilum og vinnsluaðilum sem veita nauðsynlega þjónustu fyrir rekstur kerfisins. Húsró deilir ekki upplýsingum með öðrum þriðju aðilum nema lög eða reglur krefjist þess.
Hversu lengi eru persónuupplýsingar varðveittar?
Persónuupplýsingar eru varðveittar á meðan samningssambandi stendur og eytt innan 30 daga frá lokun reiknings.
Við lok viðskiptasambands getur húsfélagið óskað eftir útflutning á öllum bókhaldsgögnum sínum. Húsfélagið ber ábyrgð á að varðveita þau gögn í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994 sem kveður á um sjö ára varðveisluskyldu á bókhaldsgögnum og 25 ára varðveisluskyldu á ársreikningum. Húsró eyðir gögnum innan 30 daga frá því að útflutningur hefur verið veittur.
Öryggi persónuupplýsinga
Hjá Húsró skiptir öryggi og réttleiki upplýsinga öllu máli. Öryggi og meðhöndlun upplýsinga lýtur stöðugu eftirliti ásamt því að tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir eru gerðar til að tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga og ábyrgða meðhöndlun þeirra.
Réttindi hins skráða
Samkvæmt persónuverndarlögum eiga einstaklingar sem Húsró vinnur upplýsingar um rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum sínum, leiðréttingu, eyðingu, flutningi og takmörkun vinnslu. Einstaklingar geta einnig andmælt vinnslu á grundvelli lögmætra hagsmuna og afturkallað samþykki hvenær sem er.
Ef einstaklingar hafa spurningar eða athugasemdir við meðferð persónuupplýsinga þeirra hjá Húsró eða vilja nýta réttindi sín samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga geta þeir sent erindi til: hallo@husro.is
Vefmælingar
Húsró notar Umami til að mæla notkun. Umami notar ekki vafrakökur eða kennimerki (e. fingerprinting). Engar upplýsingar sem auðkenna ákveðinn einstakling fara úr vafranum þínum til Umami. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Umami.
Breytingar
Húsró áskilur sér rétt til að gera breytingar á þessari persónuverndarstefnu án fyrirvara. Ný útgáfa tekur gildi um leið og hún er birt á heimasíðu Húsró.