Spurningar og svör
Ef þú finnur ekki svar við spurningunni þinni sendu okkur þá póst á hallo@husro.is.
Almennt
Hvað er Húsró?
Húsró er íslenskur hugbúnaður sem er sérstaklega hannaður til að einfalda bókhald og rekstur íslenskra húsfélaga.
Fyrir hverja er Húsró?
Húsró er fyrir öll húsfélög sem vilja reka sig sjálf og fá sem mest úr húsgjöldunum. Kerfið virkar bæði fyrir stór og lítil húsfélög og er ætlað öllum eigendum og íbúum.
Er hægt að nota Húsró bæði í tölvu og síma?
Já. Húsró virkar í öllum vöfrum og er hannað fyrir bæði tölvur og síma.
Hvað þurfum við að gera sjálf og hvað gerir Húsró?
Meginreglan í hönnun Húsró er að minnka handavinnu eins og hægt er. Í sumum tilfellum er virknin alveg sjálfvirk, í öðrum tilfellum eru stjórnarmenn beðnir um að staðfesta aðgerðir sem kerfið leggur til. Eðli málsins samkvæmt er svo ákveðin virkni sem ennþá þarf að gera í höndunum en þá leggjum við mikið upp úr því að einfalda það sem hægt er.
Hvers vegna er Húsró svona ódýrt?
Með því að nýta okkur sjálfvirkni getum við boðið húsfélögum tól sem að einfaldar rekstur húsfélagsins fyrir mun lægra verð en hefðbundnar húsfélagsþjónustur.
Hvernig fæ ég hjálp ef eitthvað fer úrskeiðis?
Sendu okkur póst á hallo@husro.is. Við svörum samdægurs.
Hvernig er ársreikningurinn búinn til?
Kerfið flokkar færslur byggt á þeim upplýsingum sem fylgja þeim frá bankanum (eins og til dæmis skýringum og færslulyklum) og gagnagrunni sem við höfum smíðað varðandi resktraraðila, þjónustur og fleira. Þeim færslum sem kerfinu tekst ekki að flokka af öryggi er flaggað svo gjaldkeri húsfélagsins geti staðfest eða breytt flokkuninni.
Við höfum svo smíðað hugbúnað í samvinnu við bókara og endurskoðanda sem að býr til réttan ársreikning út frá færslunum og flokkuninni.
Við höfum svo smíðað hugbúnað í samvinnu við bókara og endurskoðanda sem að býr til réttan ársreikning út frá færslunum og flokkuninni.
Hvað ef við erum með flókinn rekstur, t.d. sameiginlegt húsfélag, leiguíbúðir eða atvinnuhúsnæði?
Húsró styður nú þegar alls konar flækjustig og við erum sífellt að bæta við meiri stuðningi. Ef þið eruð ekki viss um hvort að Húsró henti ykkar húsfélagi, sendið okkur póst á hallo@husro.is og við finnum út úr því.
Uppsetning
Hvernig byrjum við?
Þið skráið ykkur inn með rafrænum skilríkjum og stofnið húsfélagið í kerfinu. Eftir það getið þið boðið öðrum í húsfélaginu í Húsró og nýtt ykkur alla þá virkni sem að einfalda áskriftin býður upp á. Í snjöllu áskriftinni nýtum við upplýsingar úr fasteignaskrá til að minnka handavinnu og sannreyna upplýsingar um húsfélagið og eigendur.
Hvaðan koma upplýsingarnar um húsfélagið?
Í einföldu áskriftinni koma upplýsingarnar frá ykkur. Í snjöllu áskriftinni sækjum við opinber gögn úr fasteigna- og fyrirtækjaskrá og þið bætið við upplýsingum og breytið eftir þörfum.
Er mikið mál að flytja húsfélagið yfir í Húsró?
Nei. Húsró er sérstaklega hannað til að vera einfalt í notkun og uppsetningu. Það ætti ekki að taka flest húsfélög nema nokkrar mínútur að koma sér af stað. Við aðstoðum við uppsetningu ef þess þarf.
Getum við flutt gögnin okkar frá öðrum húsfélagsþjónustum yfir í Húsró?
Já. Þú segir upp samningnum við núverandi þjónustu og við hjálpum þér að flytja gögnin ykkar yfir í Húsró. Ef þið eruð samningsbundin til lengri tíma sendið okkur þá línu á hallo@husro.is og við finnum leið til að þið getið nýtt ykkur Húsró í uppsagnarfrestinum.
Get ég sett inn gögn frá húsfélaginu aftur í tímann?
Já. Þú getur sett inn bankafærslur aftur í tímann og hlaðið upp skjölum eins og fundargerðum og öðrum gögnum.
Verð, uppsögn og binding
Hvað kostar Húsró?
Einfalda áskriftin kostar ekkert en það er eitt fast mánaðar verð á hvern eignarhluta í snjöllu áskriftinni. Auk þess er greitt aukalega fyrir rafrænar undirskriftir og uppflettingar í fasteignaskrá (uppsetning húsfélags undanskilin). Sjá meira í verðskrá.
Hvernig er greitt fyrir áskrift?
Áskriftargjald er innheimt með greiðsluseðli í netbanka húsfélagsins. Ef húsfélagið er ekki með netbanka hafið þá samband á hallo@husro.is.
Er einhver binding?
Það er engin binding. Þið getið sagt upp áskriftinni hvenær sem er og uppsögnin tekur gildi í lok gildandi greiðslutímabils. Þið greiðið aðeins fyrir þann tíma sem húsfélagið var með virka áskrift.
Hvernig segjum við upp áskriftinni?
Þið getið sagt upp áskriftinni hvenær sem er í gegnum stillingar húsfélagsins í Húsró.
Hvað verður um gögnin okkar ef við hættum í áskrift?
Eftir uppsögn getur húsfélagið óskað eftir að fá afrit af gögnunum sínum í 30 daga áður en þeim er eytt.
Gögn og gagnaöryggi
Hver á gögnin?
Húsfélagið á gögnin. Þið getið óskað eftir afriti af þeim hvenær sem er.
Hver hefur aðgang að gögnunum?
Aðeins stjórnin og þau sem hún gefur aðgang. Starfsfólk Húsró skoðar ekki gögnin nema þú biðjir um aðstoð og gefir fyrir því leyfi.
Hvernig skráum við okkur inn?
Eingöngu með rafrænum skilríkjum (Kenni).
Notendur og aðgangur
Hvernig virkar aðgangsstýring í Húsró?
Notendum er úthlutað hlutverkum sem stjórna því hvað þeir geta séð og gert í Húsró. Með hlutverkunum er hægt að stjórna hvaða notendur geta skoðað til dæmis bankafærslur, fjárhag, skjöl og fundargerðir. Hverjir geta stýrt framkvæmdum og bókað húsfund og hver getur hlaðið inn bankafærslum, flokkað þær, breytt þeim og útbúið ársreikninga og aðrar skýrslur.
Þurfa allir í húsfélaginu að nota kerfið?
Nei. Húsró virkar best af allt húsfélagið notar það saman, en það er ekki nauðsynlegt. Þið ráðið því alveg sjálf.
Hvað gerist þegar stjórn eða eignarhald beytist?
Auðvelt er að breyta hlutverkum og bæta við og fjarlægja notendur. Húsró fylgir húsfélaginu, ekki einstaklingum svo engin gögn tapast.